Runner

 

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

1.6.03

 
Til hamingju með afmælið Gunnar. 20 ára. Skilið kveðju til allra frá mér.

25.5.03

 
Jæja, ég sé að myndir eru þegar komnar upp á heimasíðuna! Það er þarmeð óhætt að halda að flugferðin hafi gengið vel. Gunni tekur sig vel út undir Afrískri sól sem og aðrir náfölir Íslendingar :) Ég er að basla við ritgerð hér heima í Lundi og get varla beðið eftir því að fá að komast heim á klakann. Annars er allt í rólegheitum hérna hjá okkur. Veðrið skánaði allverulega frá því sem hefur verið en 23 stiga hiti og sól hlýtur að geta talist skítsæmilegt. Ég bið kærlega að heilsa öllum Mósambíkförum (og búum) og vænti þess að fleiri myndir verða settar upp á netið. Þó ég telji að það sé óþarft að minna á það.

11.5.03

 
Ég veit nú ekki alveg hvað skal segja um yfirstaðnar kosningar. Hékk í alla nótt fyrir framan netútsendingu ríkissjónvarpsins og fylgdist með. Dálítið spenntur í fyrstu þar sem stjórnin hélt aðeins naumum merihluta framan af og Ingibjörg Sólrún var ennþá inni. Ég held að klukkan hafi verið um hálf tólf þegar síðustu atkvæði voru talinn og tölur byrtar. Síðan fór ég að sofa, nokkuð uppgefin líkamlega og andlega. Þetta er alveg magnaður andskoti.... Flottar nýju myndirnar. Held að ég eigi heiðurinn af tveimur þeirra.

10.5.03

 
Flott heimasíða! :) Hafðu samband ef þú ert í vafa um eitthvað.